fbpx

Um okkur

Um okkur

Heyrnartækni er fyrsta einkarekna heyrnartækjastöðin á Íslandi og hóf starfsemi í júní 2001. Heyrnartækni er leiðandi í þjónustu við heyrnarskerta á landsbyggðinni og veitum við reglulega þjónustu á fjölda staða á landsbyggðinni fyrir utan Reykjavík. Starfsfólk Heyrnartækni hefur áratuga reynslu af greiningu og meðferð heyrnarskerðingar og sækir reglulega námskeið til að bæta við þekkingu í heyrnarfræðum og meðhöndlun heyrnarskerðingar.

Starfsfólk

Anna Linda Guðmundsdóttir

Löggiltur heyrnarfræðingur
Löggiltur hjúkrunarfræðingur
HCPC RHAD / MSHAA
annalinda@heyrnartaekni.is

Árni Hafstað

Löggiltur heyrnarfræðingur
Löggiltur talmeinafræðingur
Off. Godkjent Audiograf

Björn Víðisson

Framkvæmdastjóri Sérfræðingur í heyrnartækjum bjorn@heyrnartaekni.is

Guðmundur Sigurvinsson

Afgreiðsla / Verkstæði gsig@heyrnartaekni.is

Kolbrún Harðardóttir

Skrifstofustjóri / Bókari kolla@heyrnartaekni.is

Magnús Guðmundsson

Tæknimaður / Afgreiðsla magnus@heyrnartaekni.is

Hér finnur þú okkur

Heyrnartækni er til húsa í Glæsibæ við Álfheima 74 í Reykjavík. Við erum í Austurhúsinu (gamli Glæsibær) og gengið er inn á gaflinum sem snýr að Tennishöllinni.
Um er að ræða sér inngang og gengið er meðfram húsinu, annað hvort frá bílastæðinu fyrir framan gamla Glæsibæ eða bílastæðinu sem liggur á milli gamla og nýja Glæsibæjar.

Opnunartími

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá 8:30 til 17:00.
Föstudaga er opið frá 8:30 til 16:00.

Sumaropnun (júní, júlí og ágúst)
Mánudaga til fimmtudaga er opið frá 8:15 – 16:30
Föstudaga er opið frá 8:15 – 15:30

Umboðsfyrirtæki

Heyrnartækni er umboðsaðili fyrir danska fyrirtækið Oticon sem er einn elsti, stærsti og virtasti heyrnartækjaframleiðandi í heiminum. Oticon var stofnað árið 1904 af Hans Demant en eiginkonan hans var heyrnarskert.

Hjá Oticon starfa rúmlega 3.000 manns og er fyrirtækið með heyrnartækjastöðvar í 24 löndum og sjálfstæða umboðsaðila í 80 löndum víðs vegar um heiminn.

Persónuverndarstefna Heyrnartækni

Heyrnartækni er annt um persónuvernd og leggur því ríka áherslu á að vernda persónuupplýsingar sem við meðhöndlum í okkar starfsemi og tryggja lögmæta notkun þeirra.

Lesa meira