Gott er að fá fjölskyldumeðlm eða vin með sér sem hjálpar þér að muna það sem sagt er. Áður en mætt er í heyrnarmælingu er gott að rifja upp þær aðstæður sem þér reynist erfitt að heyra í og jafnvel skrifa þær niður á blað.
Ekki er æskilegt að vera í miklum hávaða rétt áður en farið er í heyrnarmælingu.
Margir
eiga erfitt með að heyra samtal í umhverfishávaða og klið eins og t.d. á
fundum, í samkvæmum, á veitingastöðum og í verslunum. Þegar þú hefur
komist að niðurstöðu um hvaða staðir eru mikilvægastir fyrir þig og hvar
þú vildir heyra skýrar er gott að ræða það við sérfræðinginn svo hann
viti betur hvaða aðstæður skipta þig mestu máli.